Lærerhjørnet
 

 

| Forsíða | kennarahorn |

Velkomin(n) á www.molekult.org
- spennandi leið til að kenna efnafræði!

Ert þú að leita að tæki til að gera atóm og mólikúl að enn skemmtilegra kennsluefni? Vantar þig gott kennsluefni á netinu sem tengist vísindum? Viltu láta nemendur þína vinna með öðrum nemendum í Evrópu? Telur þú að blanda af námi og leik geti borið ávöxt?

Ef svo er, þá er þetta vefur sem þú og nemendur þínir hafa verið að bíða eftir!

Mólikúl, sem var þróað af Norksu menntamiðstöðinni (Læringssenteret), er nettengdur fjölnota leikur um efna- og umhverfisfræði. Með því að nýta þekkingu nemenda á tölvuleikjum, viljum við örva áhuga þeirra á vísindum og búa til skapandi námsaðstæður fyrir ungt fólk. Í leiknum er ýmsum fróðleiksmolum blandað saman við nöfn efna, formúlur og þrívíð líkön. Vefsíðan hefur það markmið að styðja leikinn með því að bjóða gagnlegar upplýsingar sem tengjast netleiknum, í bland við almennt efni um vísindi og tækni.

Við erum að vinna að námsefni sem er hannað með tilliti til námskrár 10. bekkjar og framhaldsskólans. Nýtt efni birtist á næstu mánuðum og við vonum að bæði leikurinn og vefsíðan verði spennandi og áhugaverð leið til að vinna með efnafræði.

Mólikúl er aðallega árangur samstarfs á milli Norksu námsgagnastofnunarinnar (NLS) og FunCom þó önnur Norðurlönd hafi einnig tekið þátt. Síðasta útgáfa leiksins er samstarfsverkefni Norsku menntamiðstöðvarinnar (LS) og FunCom ásamt ráðuneyta menntamála í Danmörku og Portúgal.

 
 
Skolenettet