|
Mólikúl er efnafræðileikur á netinu fyrir allt að fjóra keppendur. Leikreglurnar eru einfaldar: Í samkeppni við aðra keppendur, verður þú að ná atómum, byggja mólikúl og svara spurningum um efnafræði.
Í leiknum færðu úthlutað spilum með efnafræðiformúlu eða nafni mólikúls. Til að byggja viðkomandi mólikúl verður þú að ná atómum af leikborðinu og setja saman réttan fjölda atóma. Ef þú getur byggt mólikúl, birtist það sem þrívítt líkan. Þú getur snúið þessu líkani með músinni. Þú getur einnig kannað þekkingu þína á efnafræði í "Tvöfalda eða hætta" próflotu. Því hærra þyngdarstig sem þú velur, því fleiri stig færðu.
Á meðan þú spilar Mólikúl leikinn getur þú spjallað við keppinauta þína, sent þeim athugsemdir eða spurningar.
Þetta er 2. útgáfa leiksins og hefur hún þegar verið þýdd á átta önnur tungumál; norsku, þýsku, frönsku, dönsku, sænsku, slóvensku, portúgölsku og samísku. Þegar okkur hefur tekist að setja leikinn út á netið á öllum þessum tungumálum, geta keppendur frá mismunandi löndum spilað saman, hver á sínu tungumáli - og fundið sameiginlegt tungumál til spjalls. Við erum að vinna í námsefninu. Mikið af efninu hefur verið þýtt og birt nú þegar og innan skamms munu um þrjú hundruð nýjar spurningar liggja fyrir á níu mismunandi tungumálum. Nýtt efni mun stöðugt verða tiltækt og vonandi ný tungumál einnig áður en langt um líður.
|