|
Markmiðið með Mólikúl leiknum er að veiða atóm, byggja mólikúl og svara spurningum sem tengjast efnafræði til að ná í fleiri stig en keppinautur þinn. En áður en þú getur byrjað að gera þetta, verður þú að tengjast leiknum og finna einhvern til að spila við:
- Smelltu á græna Atóm manninn og bíddu í örfáar sekúndur til að komast í leikinn.
- Skráðu þig inn með því að skrifa fornafn þitt, gælunafn og bekkinn þinn. Þú getur valið hvort þú vilt nota aðgangsorð eða ekki.
- Það verða að vera að minnsta kosti tveir keppendur til að spila Mólikúl. Í Pörunarherberginu finnur þú andstæðing með því að taka þátt í leik sem þegar hefur verið búinn til eða með því að stofna nýjan leik sjálf(ur).
- Ef til er leikur sem þegar hefur verið stofnaður, getur þú smellt á [Taka þátt!] og beðið eftir því að keppandinn sem bjó til leikinn hefji hann. (Aðeins sá sem býr til leikinn getur byrjað hann.)
- Ef þú ákveður að stofna nýjan leik, verður þú að smella á [Stofna leik]-takkann og velja námsefni, tímamörk og þyngdarstig. Áður en þú getur hafið leikinn þinn, verður þú að bíða þangað til einn eða fleiri keppendur skrá sig inn sem þátttakendur.
Þú ert núna kominn á Mólikúl leikborðið
Hérna er það sem Atóm maðurinn þinn verður að veiða atóm til að geta byggt mólikúl og svarað Tvöfalda eða hætta spurningum. Hver keppandi hefur takmarkaðan fjölda hoppa og tiltekinn tíma áður en næsti keppandi fær að gera.
- Þú verður að tæma heimareit þinn af atómum áður en þú getur farið á aðalborðið.
- Á aðalborðinu getur þú fært þig úr stað að eigin vild og veitt eins mörg atóm og Töfraspil og þú mögulega getur.
- Atómin þín eru geymd í Geymslunni þinni og þú getur flutt þau í Verksmiðjuna þína til að byggja mólikúl.
- Þú byggir mólikúl með því að tvísmella á Mólikúlspilin. Þú verður að hafa rétt atóm í Verksmiðjunni þinni til að geta byggt mólikúlið sem þú ætlar þér.
- Um leið og þú hefur byggt eitt mólikúl, getur þú farið í Tvöfalda eða hætta próflotu með því að hoppa í brunninn í miðju leikborðsins.
- Í Tvöfalda eða hætta próflotunni, velur þú fyrst þyngdarstig og svarar síðan spurningunum.
- Þegar tíminn er útrunninn, er keppandinn með flest stigin sigurvegarinn.
Smelltu á krækjurnar til vinstri til að lesa allt um það hvernig spila á Mólikúl leikinn.
Smelltu á græna Atóm manninn til að fara í leikinn.
Gangi þér vel!
|