|
Besta lausnin er að ná í Mólikúl á allar tölvur sem nemendur nota. Þegar þú nærð í leikinn þarftu að fylgja öllum leiðbeiningum sem koma á skjáinn og velja hvar á tölvunni þú vilt vista leikinn.
Þú getur náð í Mólikúl af netinu án endurgjalds hér:
Ná í leik (21 MB)
Tími sem það tekur að ná í leik:
| Nettenging |
Tími sem það tekur að ná í leik |
| T1 (1,4 MB) |
u.þ.b. 1 mín 50 sek |
| ISDN (128 k) |
u.þ.b. 20 mín |
| 56 k |
u.þ.b. 45 mín |
| 28,8 k |
u.þ.b. 1 klst 30 mín |
| 14,4 k |
u.þ.b. 3 klst |
Þegar þú hefur náð í forritið, verður þú að setja leikinn upp á tölvuna þína með því að tvísmella á skrána sem er vistuð sem "exe"-skrá. Farðu svo eftir þeim leiðbeiningum sem verða gefnar um hvernig á að setja leikinn upp. Á meðan á þessu ferli stendur getur þú valið tungumálið sem þú villt fá leikinn á.
ATHUGAÐU: Þú þarft að endurræsa tölvuna þína eftir að uppsetningu hefur verið lokið.
Þegar búið er að setja leikinn upp, byrjar þú hann með því að tvísemlla á Mólikúl-táknið á skjáborðinu, með því að smella á græna Atóm manninn á index-síðunni eða með því að smella .
hér
Lágmarks tölvukostur:
- Pentium 166 MHz
- 32 MB RAM
- 21 MB laust diskpláss
- Nettenging
- Skjákort með 1 MB minni
- 800x600 pixels
- Windows 95/98/2000/NT
Þörf fyrir nettengingu:
Til að geta spilað leikinn er nauðsynlegt að vera nettengdur, en ekki er þörf á sérstökum hraða eða tengingum.
Ef þú ert að spila á tölvu skólans og skólinn þinn er með proxy-gagnaþjón settan upp, verður netstjórinn að breyta um hlið, bæði í Mólikúl (þetta verður að gera þegar forritið er sett upp) og einnig á gagnaþjóninum til þess að leikurinn virki. Í tilfellum þar sem eldveggir eru til staðar, verður að opna þá til að geta haft tvö hlið (16400 og 16060) opin á molekult.funcom.com.
ATHUGAÐU! Til að geta lesið efnaformúlurnar í leiknum, verður vafrarinn þinn að geta lesið Lucida Sans Unicode. Þú getur sótt Lucida Sans Unicode án endurgjalds af þessari síðu: http://htplus.net/fonts/main.html ef þú hefur ekki þessa leturgerð nú þegar í tölvunni þinni.
Vandamál?
Ef forritið er rétt uppsett og hleðst inn u.þ.b. 90% og stoppar síðan, er möguleiki að Mólikúl nái ekki sambandi við gagnaþjóninn. Ástæðan gæti verið að proxy-gagnaþjónn eða eldveggur eru ekki með réttum stillingum. Þú getur gengið úr skugga um það með því að keyra eftirfarandi skipun í dos-ham:
"telnet molekult.funcom.com 16400"
Ef tölvunni þinni er meinaður aðgangur að gagnaþjóninum, gefur telnet-forritið eftirfarandi villumeldingu: "Tenging mistókst" eða einhverja aðra álíka. Í þannig tilfellum ættir þú að hafa samband við netstjórann í skólanum þínum.
Um nánari upplýsingar, vinsamlegast hafðu samband við Sigurlaug Kristmannsdóttir |